Leita    A A A | Hafa samband

Um okkur

Reykjavík Dance Festival hóf göngu sína árið 2002. Stofnendur eru þau Ástrós Gunnarsdóttir, Cameron Corbett, Jóhann Freyr Björgvinsson, Nadia Banine, Ólöf Ingólfsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Þessir sjálfstætt starfandi danslistamenn ákváðu að sameina krafta sína og skapa hátíðina sem vettvang fyrir ný íslensk dansverk.

Reykjavík Dance Festival 2010 verður haldin dagana 1. – 5. september næstkomandi. Dagskrá hátíðarinnar í ár er mjög glæsileg þar sem fram koma fremstu danslistamenn landsins auk erlendra gesta á heimsmælikvarða.  Ný sviðsverk verða frumsýnd auk dansvídeóverka, dansgjörninga og ekki má gleyma hinni árlegu dansgöngu Reykjavík Dance Festival um miðbæ Reykjavíkur.
 
Höfundar verkanna í ár eru: Erna Ómarsdóttir og Valdimar Jóhannsson, Margrét Sara Guðjónsdóttir, Ólöf Ingólfsdóttir, Steinunn Ketilsdóttir, Isabelle Schad og Laurent Goldring (Þýskaland/Frakkland) Saga Sigurðardóttir og Anat Eisenberg (Ísrael), Dansfélagið Krummi, Valgerður Rúnarsdóttir, Hrafnhildur Einarsdóttir, Tinna Grétarsdóttir og Sólrún Sumarliðadóttir og Muscle And Hate Crew (Svíþjóð).

Reykjavík Dance Festival er mikilvægur vettvangur fyrir sjálfstætt starfandi danslistamenn og gegnir gríðarlega áríðandi hlutverki í þróun íslenskrar danslistar.  Eitt af meginmarkmiðum hátíðarinnar er að stækka markaðssvæði íslenskra dansverka og á undanförnum árum hefur Reykjavík Dance Festival boðið til sín skipuleggjendum erlendra hátíða.  Í kjölfarið hefur íslenskum dansverkum verið boðið á hátíðir víðs vegar um heiminn og nafn Reykjavík Dance Festival borist víða, mikilvæg tengslanet skapast og erlent samstarf orðið til.  Þannig hefur útrás listarinnar stóraukist enda er danslistin hágæða útflutningsvara sem getur styrkt ímynd landsins á erlendri grundu.  Fjöldi erlendra gesta hefur aukist gífurlega síðastliðin ár og nú stefnir í enn eitt aðsóknarmetið. Þá hafa skipuleggjendur erlendra danshátíða staðfest komu sína í ár.

Áherslur hátíðarinnar hafa verið mismunandi frá ári til árs en meginmarkmiðið hefur ávallt verið að færa danslistina nær hinum almenna borgara, auka sýnileika nútímadans í samfélaginu og kynna sjálfstætt starfandi danslistamenn á Íslandi.


Reykjavik Dance Festival
www.dancefestival.is
Baldursgata 25b
101 Reykjavík
+354 862 6023
Netfang steinunn_k@hotmail.com