Leita    A A A | Hafa samband

RDF 2010

Reykjavík Dance Festival 2010 nálgast óðum! Í vændum er spennandi dagskrá sem enginn má missa af! Hátíðin verður haldin dagana 1. – 5. september í samstarfi við Norðurpólinn, Listasafn Reykjavíkur (Hafnarhúsið) og Brim-húsið. Dagskráin í ár er hin glæsilegasta þar sem fram koma fremstu danslistamenn landsins auk erlendra gesta.  Ný sviðsverk verða frumsýnd auk vídeóverka og dansgjörninga. Hægt er að kaupa staka miða á sýningar eða hátíðarpassa sem gildir á allar sýningar festivalsins. Miðasala fer fram á midi.is og í síma: 8577455.
Taktu frá dagana 1.-5. september og fylgstu vel með okkur hér á heimasíðunni og á facebook. Allar nánari upplýsingar er að finna hér á heimasíðunni.  Leiklistarhátíðin Lókal verður haldin þessa sömu helgi og við minnum alla á hið árlega RDF/Lókal partý sem haldið verður í Iðnó laugardagskvöldið 4.september. Hlökkum til að sjá þig!

Troðfullt út úr dyrum!

Það var bókstaflega troðfullt út úr dyrum á báðum sýningum opnunarkvölds Reykjavík Dance Festival í gær! Hátíðarstrætóinn var vel nýttur og mikil festival-stemmning sveif yfir vötnum. Færri komust að en vildu í gær þannig að við hvetjum fólk til að t...

[+] Nánar

Hvað kostar?

Bæði er hægt að kaupa miða á stakar sýningar og danspassa sem gildir á allar sýningar festivalsins. Stakir miðar kosta 1500 kr. og 2500 kr. Hærra verðið gildir á sýningar þar sem sýnd eru tvö verk saman (Þá skal ég muna þér kinnhestinn / Eins og vatn...

[+] Nánar
Reykjavik Dance Festival
www.dancefestival.is
Baldursgata 25b
101 Reykjavík
+354 862 6023
Netfang steinunn_k@hotmail.com